Saturday, November 13, 2010

Hvað er Bowen meðferð?

Bowen meðferð felst í því að Bowentæknirinn notar fingurna til að gera rúllandi hreyfingar yfir vöðva og sinar á ákveðnum stöðum á líkamanum.
Yfirleitt er allur líkaminn meðhöndlaður en ekki aðeins það svæði sem kvartað er yfir verkjum í.
Á milli hreyfinga yfirgefur Bowentæknirinn herbergið til þess að gefa líkama þiggjandans tóm til að melta þau skilaboð sem hann fær með hreyfingunum sem hefur þau áhrif að spenna í líkamanum minnkar og sjálfsviðgerðareiginleikar hans taka að starfa.
Sumir upplifa það að verkir hverfi eftir aðeins eina meðferð. Aðrir þurfa fleiri meðferðir og hjá einstaka þiggjanda hjálpar Bowenmeðferð ekki.
Yfirleitt er ráðlagt að fólk komi þrisvar í meðferð með viku millibili og þá án þess að fara í aðrar líkamsmeðferðir á meðan s.s. hnykkingar, nudd, sjúkraþjálfun og þessháttar.
Oftast duga þessar 3 meðferðir til þess að í finna út hvort Bowenmeðferð virkar á þiggjandann þótt um langvarandi ástand sé um að ræða.
Mörgum finnst gott að við halda góðum árangri meðferðarinnar og fara í Bowenmeðferð með 6, 9 eða 12 mánaða millibili.
Við meðferð fer oft mikið hreinsunarferli í gang í líkamanum og gömul uppsöfnuð eiturefni losna. Þeir sem eru veikir geta upplifað að verkir aukast og gamlir verkir sem legið hafa í dvala stundum í áraraðir láta á sér kræla.
Sumum finnst af þessum sökum Bowenmeðferð vera slæm, því þeir gera sér ekki grein fyrir því að þá hefur hreinsunar- og heilunarferli líkamans verið virkjað og enn betri líðan er í vændum.

No comments:

Post a Comment