Saturday, November 13, 2010

Fótakort

Saga SMFÍ Forsaga félagsins og upphaf svæðameðferðar á Íslandi

Í nóvember 1977 kom hingað til landsins Norðmaður að nafni Harald Thiis sem hélt fyrsta námskeiðið í svæðameðferð á Íslandi. Var strax mikil áhugi á svæðameðferð, 28. april 1978 voru stofnuð samtökin “Svæðameðferð og heilsuvernd” og eru þau samtök forveri þeirra félaga sem eru starfrægt hér í dag.
Eftir aðalfund þann 21. maí 1981 varð nafnbreyting á félaginu þar sem nafninu var breytt í "Félagið svæðameðferð". Árunum þar á eftir voru haldin mörg námskeið í svæðameðferð en árið 1989 var stofnaður skóli sem nefndur var Svæðameðferðaskóli Íslands, útskrifaði hann tvo árganga en hætti svo starfsemi.
Saga Svæðameðferðar
Svæðameðferð er ævagömul handiðn, sem er sögð hafa rætur að rekja til margra fornra menningarsamfélaga, þar má nefna Egypta, Kínverja, Indverja, Grikki og Indjána Norður Ameríku. Svæðanudd á rætur að rekja til aðferða lækna í Egyptalandi hinu forna. Á veggmyndum frá 2.300 f.Kr., sem fundust í grafhýsi egypska læknisins Ankhmahars í Sakkara, má sjá tvo lækna nudda fætur og hendur tveggja “sjúklinga”. Forn Kínverjar þróuðu svo þessa þrýstipunkta aðferð. Þeir komust að því að fætur eru næmasti líkamsparturinn og hefur að geyma mikil orkugefandi svæði.
Nútímasvæðameðferð
Það var bandaríski háls-, nef-, og eyrnalæknirinn, Dr. William Fitzgerald sem endurvakti svæðameðferð hér á vesturlöndum snemma á síðustu öld. Dr. Fitzgerald komst að þeirri niðurstöðu að beinn þrýstingur á svæði fóta og handa gat haft bæði deyfandi og örvandi áhrif annarstaðar í líkamanum. Hann studdist við gömlu fræðin og þróðaði nýja svæðameðferðartækni, hélt fyrirlestra, gaf út bókina Zone-therapy með þessum nýju aðferðum, kenndi og prófaði sig áfram á fjölda manns.
Það voru ekki margir læknar sem sýndu þessu “nýja” meðferðarformi áhuga. En það var þó einn Dr. Joseph Riley og sjúkraþjálfari hans EUNICE INGHAM (1879-1974) sem ætti með réttu að vera nefnd móðir nútíma svæðameðferðar því það var árangur hennar, óþreytandi rannsóknir og vinnusemi sem hefur gert svæðameðferð að því sem það er í dag. Það var hún sem vann það vandasama verk að kortleggja svæði fóta og handa. Hún þróðaði til þess sérstaka nuddtækni sem hefur verið nefnd eftir henni, Ingham aðferðin. Hún gaf út bækurnar Frásagnir fóta I og II sem Örn og Örlygur gáfu út árið 1976 og 1977.
Hvað er svæðameðferð?
Svæðameðferð byggist á þeirri kenningu að í fótum og höndum séu viðbragðssvæði sem tengist og samsvari hverjum líkamshluta og hverju líffæri líkamans. Ef þessir líkamshlutar eða líffæri eru veikluð að einhverju leyti vegna álags, þreytu eða sjúkdóma, verða viðbragðssvæði þessi aum viðkomu. Þessi aumu svæði skilgreinast oft sem þykkildi, samanþjöppun af örsmáum ögnum eða einfaldlega sem spenna , sem þjálfaður meðferðaraðili getur numið.
Svæðameðferð er mjög áhrifa- og árangursrík meðferð sem virkjar lækningamátt líkamans sjálfs. Líkaminn vinnur "viðgerðarstörf" sín best í djúpri slökun sem svæðameðferð veitir. Þegar við erum hraust erum við orkumikil, en orkulítil þegar við erum of þreytt, undir of miklu álagi eða veik. Svæðameðferð eflir orkufæðið og blóðstreymið. Súrefnisupptakan í líkamanum verður eðlilegri og andlegt og líkamlegt atgerfi eykst. Þetta er meðferðarform sem vinnur heildrænt að jafnvægi.

Hvað er Bowen meðferð?

Bowen meðferð felst í því að Bowentæknirinn notar fingurna til að gera rúllandi hreyfingar yfir vöðva og sinar á ákveðnum stöðum á líkamanum.
Yfirleitt er allur líkaminn meðhöndlaður en ekki aðeins það svæði sem kvartað er yfir verkjum í.
Á milli hreyfinga yfirgefur Bowentæknirinn herbergið til þess að gefa líkama þiggjandans tóm til að melta þau skilaboð sem hann fær með hreyfingunum sem hefur þau áhrif að spenna í líkamanum minnkar og sjálfsviðgerðareiginleikar hans taka að starfa.
Sumir upplifa það að verkir hverfi eftir aðeins eina meðferð. Aðrir þurfa fleiri meðferðir og hjá einstaka þiggjanda hjálpar Bowenmeðferð ekki.
Yfirleitt er ráðlagt að fólk komi þrisvar í meðferð með viku millibili og þá án þess að fara í aðrar líkamsmeðferðir á meðan s.s. hnykkingar, nudd, sjúkraþjálfun og þessháttar.
Oftast duga þessar 3 meðferðir til þess að í finna út hvort Bowenmeðferð virkar á þiggjandann þótt um langvarandi ástand sé um að ræða.
Mörgum finnst gott að við halda góðum árangri meðferðarinnar og fara í Bowenmeðferð með 6, 9 eða 12 mánaða millibili.
Við meðferð fer oft mikið hreinsunarferli í gang í líkamanum og gömul uppsöfnuð eiturefni losna. Þeir sem eru veikir geta upplifað að verkir aukast og gamlir verkir sem legið hafa í dvala stundum í áraraðir láta á sér kræla.
Sumum finnst af þessum sökum Bowenmeðferð vera slæm, því þeir gera sér ekki grein fyrir því að þá hefur hreinsunar- og heilunarferli líkamans verið virkjað og enn betri líðan er í vændum.

Tuesday, October 5, 2010

Bowentækni og Svæðameðferð

Bowentækni og Svæðameðferð

Hef opnað nuddstofuna mína aftur eftir hlé.
Lindargötu 66 – jarðhæð.




Bowentækni er áhrifarík, slakandi og heildræn meðferð. Hún hefur áhrif á ólíklegustu kvilla og verki.  Hún hefur góð áhrif t.d. á bakverki, stoðkerfisvandamál, astma, mígreni, ungbarnakveisu, ofvirkni, þunglyndi, streitu, íþróttameiðsl, meltingartruflanir, svefnleysi og margt fleira.



Svæðameðferð  er afar árangursrík við að ná fram slökun og vellíðan auka orkuflæði líkamans og styrkja hann þar með til sjálfshjálpar.  Þrýstimeðferð á taugaviðbragðssvæði og á punkta á orkubrautum líkamans þar sem þær liggja um hendur og fætur.



Býð ykkur velkomin á Lindargötuna

Kristjana Laufey Ásgeirsdóttir
Bowentæknir og Svæðameðferðaraðili
Sími 8246698   
Netfang:      trulla@simnet.is
Heimasíða:  http://bowen-kristjana.blogspot.com/

Friday, September 3, 2010

                                                                                                 






                  SVÆÐAMEÐFERÐ / BOWENTÆKNI


Í svæðameðferð er þrýst á vissa punkta
á fótum aðallega iljum

Bowentækni er létt hreyfing yfir vöðva ,
sinar og aðra mjúka vefi,
hægt að framkvæma í gegnum léttan klæðnað.

Ekki er farið í þessar meðferðir samhliða.

Endilega látið sjá ykkur.

Kristjana Laufey Ásgeirsdóttir

Svæðameðferðaraðili og Bowentæknir
Lindargötu 66, jarðhæð
101 Reykjavík
Sími 8246698 trulla@simnet.is